Opið vinnukvöld þriðjudaginn 10. mars klukkan 18-22. Við verðum á kaffihúsinu Pallett í Hafnarfirði en kaffihúsið verður lokað öðrum gestum.
Hvernig fer vinnukvöld fram?
Á staðnum verða tveir leiðbeinendur, þeir Andri og Bergur, sem samanlagt hafa yfir 25ára reynslu í hugbúnaðar og vefsíðu geiranum.
Þú mætir með tölvu, færð þér kaffi og ferð að vinna í þinni vefsíðu. Það skiptir engu hvort þú sért komin(n) með síðu eða ert að vinna í að búa til síðu, það eru allir velkomnir sem geta þegið einhverja aðstoð.
Við lofum heitu kaffi og léttri stemningu.
Húsið opnar 18:00 og verður opið til 22:00. Þátttaka kostar ekkert.