Leiðbeinendur
Laufey Haralds
PCC markþjálfi
Arnór Már
MCC markþjálfi
Rúna Björg
ACC markþjálfi
Alma
PCC markþjálfi
Snemmskráning
Skráning er hafin fyrir nám í markþjálfun sem hefst í september. Nemendur sem skrá sig í námið fyrir 22. apríl fá 10% afslátt af námsgjaldi. Við bjóðum uppá sveiganlega greiðslumöguleika sjá nánar hér
Hvað er markþjálfun?
Markþjálfun er samtalstækni sem miðar að því að hjálpa þeim sem sækja markþjálfun að hámarka möguleika sína til vaxtar. Viðfangsefni markþjálfunar geta verið persónulegur vöxtur, aukin lífsgæði, betri frammistaða eða hvað annað sem markþeginn ákveður að einbeita sér að. Í markþjálfun er lögð áhersla á samvinnu milli markþjálfa og markþega. Markþjálfinn er liðsmaður í persónulegri vegferð markþegans. Hann heldur utan um ferlið, beitir virkri hlustun og aðstoðar við að beina sjónum að kjarna málsins. Það gerir hann með speglun, óhindruðum tjáskiptum og kraftmiklum spurningum, því þannig skapast rými til viðhorfsbreytinga, sjálfsskoðunar og vaxtar þar sem markþeginn leitar að og finnur eigin lausnir.
Það sem einkennir okkur hjá Virkja
Við erum öflugt og reynslumikið leiðbeinendateymi sem hefur einstaka hæfni í að hlusta á hópinn og einstaklinginn um leið, í þessu vaxtarferli sem námið er. Okkar áhersla er á að aðstoða nemandann við að vaxa og ná þeim árangri sem hann hefur væntingar um.
Við köfum á dýptina með hverjum nemanda, skoðum og virkjum valin gildi eða viðhorf og aukum skilning á flóknum hugtökum eins og; meðvitund, athygli og orku. Við fléttum þessum hugtökum inn í aðferðina og kennum hvernig aukin meðvitund hefur bein áhrif á líðan og það hvernig við birtumst í öllum aðstæðum og samskiptum við annað fólk.
Ef þú finnur fyrir löngun til að vaxa sem manneskja, vaxa í starfi eða færast upp á næsta stig í þínu lífi, þá ert þú á hárréttum stað fyrir markþjálfanám. Við það að auka sjálfsvitundina er um leið lagður grunnur að því að hlusta af dýpt á aðra sem er forsenda hverskyns árangurs.
Við höfum mikla ástríðu fyrir faginu og einlægt traust á umbreytingarmætti markþjálfaaðferðarinnar fyrir öll þau sem vilja læra að tileinka sér hana. Aðferðin hefur sýnt og sannað gildi sitt í hvert skipti sem henni er beitt.
Nám í markþjálfun fer fram með beinni fræðslu, umræðum, sýnikennslu og æfingum. Námið er kennt á íslensku og er samtals 67 klukkustundir, skipt niður í þrjár lotur. Námsefnið miðar að því að nemendur læri grunnhæfnisþætti markþjálfunar samkvæmt stöðlum ICF (International Coaching Federation), sem er grundvöllur viðurkenndrar og árangursríkrar markþjálfunar.
Markþjálfunarnámið okkar hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun frá ICF (International Coaching Federation), sem staðfestir gæði og fagmennsku námsins.
Námið er staðarnám að mestum hluta og fer kennsla fram í Sköpunarsetrinu Síðumúla 35, 108 Reykjavík.
Grunnhæfnisþættir markþjálfunar:
- Viðhafa siðferðileg vinnubrögð
- Endurspegla markþjálfaviðhorf
- Stofna til og viðhalda samkomulagi
- Byggja upp traust og trúnað
- Leggja rækt við nærveru
- Beita virkri hlustun
- Skapa vitund
- Stuðla að auknum vexti
Hvað segja nemendur um námið?
Hvernig er námið?
Í fyrstu lotu fáum við góða yfirsýn yfir samtalstæknina, öðlumst djúpan skilning á hæfnisþáttum markþjálfunar og kynnumst því hvaða eiginleika hún inniheldur og hvers hún er megnug. Nemandinn öðlast færni í aðferðinni til þess að geta farið að nota hana og æfa sig utan skólastofunnar. Einnig er lögð áhersla á að hver og einn nemandi fái að upplifa krafta markþjálfunaraðferðarinnar á eigin skinni og öðlast þannig dýpri skilning á sjálfum sér og öðrum. Í lok fyrstu lotu fá nemendur úthlutað mentormarkþjálfa en hver og einn nemandi fær þrjá einstaklingstíma hjá reyndum mentormarkþjálfa á meðan á náminu stendur.
Í annarri lotu förum við á dýptina, köfum í kjarna manneskjunnar og rannsökum flókin fyrirbæri eins og meðvitund og lífsorku auk þess að læra á verkfæri til þess að byggja upp okkar innri styrk og vöxt. Einnig förum við dýpra í lykilþætti markþjálfunar og vinnum verkefni sem styrkja okkur í hlutverki markþjálfans.
Í þriðju lotu kynnumst við fleiri verkfærum og aðferðum sem við getum notað í markþjálfun. Einnig skoðum við muninn á hópmarkþjálfun og teymismarkþjálfun. Á síðasta degi lotunnar, sem einnig er hátíðisdagur, leggjum við lokahönd á námsefnið og lærdóminn. Eftir hádegi fögnum við árangrinum og vextinum sem átti sér stað á meðan á náminu stóð.
Á milli lota er heimanám, þar sem hver og einn nemandi markþjálfar samanlagt í sex klukkustundir á milli lotu 1 og 2 og aðrar sex klukkustundir á milli lotu 2 og 3.
Nokkrum vikum eftir útskrift er námshópnum boðið upp á hóptíma hjá mentormarkþjálfa. Þessir tímar eru hugsaðir sem eftirfylgni til að hjálpa nemendum að viðhalda þeim vexti sem hefur átt sér stað í náminu sjálfu en ekki síður til þess að halda áfram að þróa sig í hlutverki markþjálfans. Þessir tímar eru nokkrum vikum eftir útskrift og telja þrjú skipti en samanlagt um sjö klst. mentorstundir.
Fyrsta skiptið er þriggja klst. staðtími en hin tvö skiptin fara fram á netinu og taka tvær klst. hvert.
Í kjölfar skráningar er staðfestingargjald greitt, kr. 50.000 í gegnum kröfu sem er send í heimabanka. Staðfestingargjaldið dregst frá heildarupphæðinni og er óendurkræft. Við munum svo vera í sambandi í gegnum tölvupóst með hvernig þú vilt haga eftirliggjandi greiðslu.
Ef óskað er eftir því að dreifa greiðslum er hægt að hafa samband á virkja[hjá]virkja.is og kanna möguleikana frekar. Við hvetjum þig til að kynna þér rétt þinn á niðurgreiðslu námsgjalda hjá þínu stéttarfélagi en mörg stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til náms í markþjálfun. Áður en styrkur er sóttur þarf námsgjald að vera greitt að fullu.
67 stundir
67 klukkustunda staðarnám í þremur lotum með heimanámi á milli
8 dagar
Samanlagt átta heilir kennsludagar
10 mentor tímar
10 tímar hjá mentor markþjálfa þar af þrír einstaklingstímar
Spurningar berist á
virkja@virkja.is
Sími
663 6352
Staðsetning
Síðumúli 35