Framhaldsnám 30. jan

837.000kr.

Framhaldsnám í markþjálfun er fyrir þá sem hafa lokið grunnámi í markþjálfun og vilja dýpka hæfni sína, auka sjálfstraust og ná nýjum hæðum í lífi og starfi.
Námið er sérstaklega hannað til að virkja og dýpka skynjun og skilning markþjálfans, með það að markmiði að styrkja færni hans bæði í starfi og daglegu lífi.

Þetta framhaldsnám er vegferð djúprar sjálfskoðunar og vaxandi þekkingar, fyrir þá sem vilja halda áfram að þróa sig sem markþjálfar, eða bæta eigin færni og samskipti í starfsumhverfi sínu. Hvort sem þú ert að leita að persónulegum eða faglegum vexti, mun námið styðja þig í að ná næsta markmiði og opna fyrir nýja möguleika. Í hverjum hóp er að hámarki 14 nemendur sem taka saman þátt í þessari einstöku vegferð.

Tryggðu þér pláss í þessu spennandi námi sem mun gefa þér verkfæri til að vaxa á öllum sviðum lífsins – bæði persónulega og faglega.

Additional information

Lota 1

30.jan – 2.feb
Föstudagurinn 30. janúar, kl: 10:00 – 17:00
Laugardaginn 31. febrúar, kl: 10:00 – 17:00
Sunnudaginn 1. febrúar, kl: 10:00 – 17:00

Lota 2

27.feb – 28.feb
Föstudagurinn 27. febrúar, kl: 10:00 – 17:00
Laugardagurinn 28. febrúar, kl: 10:00 – 17:00

Lota 3

20.mars – 21.mars
Föstudagurinn 20. mars, kl: 10:00 – 17:00
Laugardagurinn 21. mars, kl: 10:00 – 17:00

Lota 4

17.apríl – 19.apríl – Endurnærandi helgi í Birkihofi
Mæting í Birkihof Föstudaginn 17. apríl, kl 13:00
Við ljúkum á Sunnudeginum 19. apríl, kl 13:00

Lota 5

15.maí – 16.maí
Föstudagurinn 15. maí, kl: 10:00 – 17:00
Laugardagurinn 16. maí, kl: 10:00 – 17:00