Nám í markþjálfun
549.000kr.
Nám í markþjálfun byggist á fræðslu, umræðum, sýnikennslu og æfingum. Námið fer fram á íslensku og er samtals 67 klukkustundir, skipt niður í þrjár lotur. Námsefnið miðar að því að nemendur öðlist grunnfærni í aðferðum markþjálfunar samkvæmt stöðlum ICF (International Coaching Federation), sem eru grundvallarþættir viðurkenndrar og árangursríkrar markþjálfunar.