Þú skiptir máli, í heildarmyndinni.

Image Description

Laufey Haralds

Þú skiptir máli, í heildarmyndinni.

Það býr kraftur í því að stíga skref í átt að sjálfum sér. Ekki til að laga, heldur til að vakna, sjá, hlusta eða velja af meiri meðvitund.

Markþjálfun er leið til að virkja þann kraft. Hún kallar fram skýra sýn, innri styrk og þá útgáfu af þér sem þú veist innst inni að þú ert fær um að verða. Ferlið byrjar ekki í framtíðinni, það byrjar núna. Með þér.

Markþjálfun er ótrúlega öflug aðferð til að ná því besta fram hjá hverjum og einum, hvort sem það snýst um árangur í ytra lífi, innri vellíðan eða persónulegan þroska. Hún er ekki bara samtalstækni, heldur umbreytingarferli sem hjálpar þér að verða meðvitaðri um hvað þú vilt, hvert þú stefnir og hvernig þú vilt lifa.

Við hjá Virkja trúum því að markþjálfun henti öllum sem vilja vaxa, hvort sem það er í starfi, í samskiptum eða einfaldlega sem manneskjur. Samtalstækni markþjálfunar hjálpar þér að komast alla leið, alveg sama hvert þú ert að stefna í þínu lífi.

En eins og með allar umbreytingar, skiptir líka máli hver heldur rýminu og að viðkomandi upplifi traust. Sem segir okkur að markþjálfinn sjálfur skiptir máli til þess að manneskjan  sem leitar til hans nái settum árangri. Þess vegna leggjum við ríka áherslu á að þeir sem stunda nám í markþjálfun hjá okkur séu sjálfir opnir fyrir að stíga inn í sjálfsræktarferli og tilbúnir að horfa inn á við, taka skrefin í átt að sinni bestu útgáfu og vaxa með hverju samtali.

Í markþjálfunarnáminu okkar er sjálfsskoðun ekki aukaatriði, hún er hjartað. Við leiðum fólk í gegnum dýpt og innihald, þar sem það kynnist sínum eigin styrkleikum, gildum og viðhorfum.

Við elskum að vera samferða fólki sem vill vaxa. Hvort sem það er faglegur vöxtur, persónulegur þroski eða einfaldlega að opna sig fyrir nýrri sýn. Við viljum uppgötva með þér. Við viljum vaxa með þér.

Laufey Haralds


Image Description

Laufey Haralds

PCC Markþjálfi

Laufey er stofnandi Virkja. Hún starfar sem markþjálfi og leiðbeinandi í námi markþjálfunar.